Tíminn líður!Aron Freyr Jóhannsson

Dömur mínar, herramenn og aðrar kynjaverur sem kunnað gætu að lesa.

Hafið þið einhvertíman lent í því að eitthvað gerist óstjórnlega hratt, samt finnst ykkur vera heil eilífð síðan það var? Ef svo er þá vitið þið hvernig mér líður með að hafa verið hér í höfuðborg Bandaríkja Norður Ameríku í svo mikið sem eitt stykki mánuð. Mikið hefur gerst á þessum tíma sem hefur liðið aðeins of fljótt og þegar ég hugsa til baka til augnabliksins þegar ég lenti á JFK flugvellinum í New York, þá líður mér eins og það sé heil, ef ekki tvær eilífðir síðan!

En víkjum um stund frá því hversu lengi ég hef verið hérna og heyrum nokkrar fregnir af því hvað síðastliðin vika bar í skauti sér handa mér. Á mánudaginn ávarpaði Obama alla nemendur í skólum um allt land gegnum sjónvarpið og hvatti þá til að leggja harðar af sér í náminu og finna sína ástríðu. Virkilega sannfærandi ræða eins og meistara Obama einum er lagið, maðurinn gæti líklega sannfært meðlim í KKK um að giftast blökkumanni. En skólinn minn fékk dálítið meira en bara ræðuna hans Obama, í beinu framhaldi kom helsti fjármálaráðgjafi hans, Dr. Romer og talaði við okkur um efnahagsvandann og fleiri áskoranir sem Bandaríkin glíma við í augnablikinu.

Flestir, þar með talinn ég héldu þá að óvenjulegir atburðir í skólanum væru nú upptaldir þessa vikuna, en viti menn, kemur ekki Susan Rice, sendiherra Bandaríkjanna í Sameinuðu þjóðunum til að spjalla við okkur á 11. september, til að tala um átak sem Obama setti í gang að gera 9/11 að degi sem Bandaríkin sameinast, ekki sundrast, Sameinast í að gera heiminn að betri stað. Þetta fyrsta ár ætlum við að ráðast gegn malaríu í Afríku með netum til að sofa undir spreyuðum með skordýraeitri gegn moskítóflugum, sem dreyfa malaríu. Það verður seint sagt að þær 2 klst sem fóru í að hlusta á þessa konu og samstarfsfólk hennar hafi verið fullar af spenningi og fjöri, sérstaklega þar sem ég átti að vera í fríi í þeim tíma. En maður hefur víst ekkert um svona að segja.

Fótbolta(soccer) tímabilið hérna er 2 mánuðir, á þeim tíma munum við spila 3 leiki í viku, svo það er eins gott að maður sé í formi og láti sér ekki detta það í hug að fara að meiða sig! Mikil keyrsla þar á ferð, spiluðum fyrsta vinaleikinn okkar á föstudaginn, þar var á ferð ein sú sorglegasta afsökun fyrir andstæðingum sem ég hef séð á þeim árum sem ég hef lagt stund á þessa íþrótt, markmaðurinn hjá þeim hefði allt eins getað verið plastpoki á kústskafti. Fór leikurinn 7-1 eftir að við skiptum út svo gott sem öllu byrjunarliðinu nema markmanninum í stöðunni 3-0!
En nóg af fréttum í bili!
;Aron Freyr.


Athugasemdir

1
Viktoria skrifar:
Va, eg gaeti ekki verid meira sammala ther med timann, mer finnst vera svo langt sidan eg lenti a flugvellinum i LA en samt finnst mer eg vera buin ad vera herna otrulega stutt! Skolinn minn syndi ekki Obama raeduna!
23. september 2009 klukkan 18:04

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Aron Freyr Jóhannsson
  • Staður: Grindavík
  • Um mig: Ég er 18 ára drengur sem fékk þá furðulegu hugdettu að yfirgefa allt og alla sem ég þekki í heilt ár.. er semsagt skiptinemi í Bandaríkjunum.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...