Minniháttar tjékk inn!Aron Freyr Jóhannsson
Komiði sæl og blessuð, þetta er uppáhaldsbloggarinn ykkar allra, eða allavega flestra, hérLangt síðan ég lét síðast heyra í mér, og iðið þið öll í skinninu yfir að fá að vita hvað er að frétta af mér. Nú fyrst og fremst ber að segja frá því að búið er að fresta fótbolta(soccer) tímabilinu um tvær vikur, byrjar ekki fyrr en 5. október, en samt sem áður verður ennþá sumarveður(meðað við landið fagra þarna heima). Mér finnst það ekkert svakalega skemmtileg hugmynd því að þeim mun fyrr sem boltinn byrjar að rúlla þeim mun fyrr verður þetta virkilega skemmtilegt! Þó ætti ég að vilja meiri æfingartíma, spiluðum gegn einkaskóla um daginn, hvernig fór sá leikur... ekki mikið minna en 8-1 fyrir snobbuðu ösnunum!
En yfir í mikið merkilegra og skemmtilegra viðfangsefni, kynningarnámskeið hjá AFS númer 2. Þar var talað, og talað, og talað um vandamál og þannig ferlegheit, en vandamálið fyrir mig er að ég fæ að heyra allt sem þar var rætt, heimafyrir, þar sem ma og pa eru nú einu sinni svæðisstjórarnir. Þar hjálpaði ég bara fólkinu sem var að kynna. Þetta námskeið var haldið úti í skógi, þar sem við vorum með svefnskála, spes fyrir stelpur og stráka, en þar sem þar mátti fólk sofa, þá þurftu þeir sem engan áhuga höfðu a svefni í augnablikinu að sætta sig við að vera úti, það gerðum við nokkur og enduðum á því að nenna ekki að fara aftur til að sofa og sváfum úti á harðri móður jörð, ekki sérlega góð lífsreynsla það daginn eftir, allur útúrlemstraður í skrokknum. Fyrr um kvöldið var svo hæfileikakeppni, ef einhver ykkar eru með facebook og hafið fylgst reglulega með þegar myndir detta inn, þá sáuði mynd af undirrituðum með þverslaufu og hatt, er það af engri annarri ástæðu en þeirri að ég var kynnir í hæfileikakeppninni, sem því miður var ekki mikið um hæfileika, þar sem hæfileikaríkt fólk þorir víst sjaldan að sýna sig, enginn veit af hverju. En athyglissjúki gaurinn sem ég er var náttúrulega að fýla það í botn að vera kynnir, eða MC eins og þeir segja víst hérna úti.
Þar fyrir utan er svakalega lítið frá að segja, skólinn er alveg að slá í gegn hjá mér, fer að nálgast það að verða orðinn betri en kanarnir í þeirra eigin sögu, ekki alveg strax en kannski fyrir jól! Ég er víst farinn að svara til köllunarinnar sem er dans(að mati danskennarans).
En bara svona til að minnast á það þá biðst ég afsökunar á því að ég er latasti myndatökumaður norðan, vestan sunnan og austan alpafjalla, hef tekið svo mikið sem rétt svo 100-200 myndir meðan ég er hérna og flestar eru bara af washington dc.. hef einsett mér það markmið að hafa alltaf myndavélina við hönd héðan í frá og deila með ykkur áhugasömum.
Í bili
Aron Freyr;

gott thu skemmtir ther :)
svo sagnan gengur svona vel ha? gekk erfidlega hja emr i byrjun sen svo fae madur svona godar einkunnir! MR og hradbraut ad gera sig!
he fheldur ekki tekid mikid ad myndum!! hhaha tharf ad fara ad vera duglegri!
og vaa, namskeidid i september var bara blabla vandamal...
en hey,ertu buinn ad paela e-d i ferd med BELO Usa ?
cya