2 mánuðir.. úllalalaa!Aron Freyr Jóhannsson

Sæl og blessuð.

2 mánuðir? Svo stutt, en samt uþb einn sjötti af skiptinemadvölinni. Tíminn flýgur svo sannarlega hérna í Bandaríkjunum. Því miður get ég ekki glatt ykkur með því að segja einhverja svakalega homecoming sögu eins og öll hin skiptinemabloggin eru að gera þessa dagana, þar sem homecoming er ekki búið hérna, hef ekki einu sinni hugmynd um hvenær það er, eða hvort það er yfir höfuð, það gengur ekki alveg upp að vera ekki með „football lið" en ætla samt að halda ball í kringum það. Skiptir svo sem engu, nóg annað að gera hérna í höfuðborginni, t.d. skoða öll merkilegu bandarísku skjölin (sem eru alveg að morkna niður, skriftin á þeim varla læsileg lengur), skella sér á safnarölt, fara á einhvern klúbbinn(gaman að vera orðinn 18), rölta um bæinn eða bara láta eins og alger asni einhverstaðar (valmöguleiki númer 4 verður furðu oft fyrir valinu)

Enn einn bróðir minn kíkti við í vikunni, í þetta sinn frá Hollandi (don), þá er ég búinn að hitta 3 af 27, þar sem ég er nú númer 28, og hvað annað var gert þegar hann kíkti í heimsókn en borðað, steik, epplapæ, alls kyns gúrme gotterí.

Í skólanum er minnst eitt ferðalag í viku, á safn, danssýningu, starbucks,já, ég fór í fíld trip á starbucks, eða eitthvern ámóta skemmtilegan stað, og svo 2 til 3 fótbolta eða soccer eins og kanarnir vilja víst þvinga mig til að kalla þetta, leikir á viku, þó að þeim 2 sem áttu að vera í síðustu viku hafi verið frestað. Öðrum vegna þess að annað liðið mætti allt allt allt of seint svo dómarinn fór, þeir reyndar mættu þeir of seint vegna rútuvandræða, svo mættum við í fullum herklæðum í næsta leik, nei er ekki búið að reysa tjald sem nær 2 metra inn á völlinn okkar, dátarnir sem eiga völlinn sem við spilum á fengu þá snilldarlegu hugmynd að halda upp á októberfest! Í október, soddan fávitar þessir dátar.

Að því frátöldu er nú ekkert svakalega mikið frásagnarvert í gangi, maður skellir sér að versla en öllum er sama um svoleiðis, maður horfir á sjónvarpið og fer og hangir með vinunum, en öllum er sama um svoleiðis nema eitthvað sjokkerandi gerist. Svo í bili verðið þið bara að sætta ykkur við þetta blogg.
Aron Freyr;

Athugasemdir

1
GuðrúnG skrifar:
Mér finnst gaman að heyra að þú hafir farið að versla!!

og vá hvað ég er comment-drottningin á þessari síðu!
Alltaf gaman að heyra frá þér dúlli minn, ég er farin að sakna þess að hitta þig ekki neitt :)
14. október 2009 klukkan 22:45

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Aron Freyr Jóhannsson
  • Staður: Grindavík
  • Um mig: Ég er 18 ára drengur sem fékk þá furðulegu hugdettu að yfirgefa allt og alla sem ég þekki í heilt ár.. er semsagt skiptinemi í Bandaríkjunum.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...