Smávægileg bloggfærsla!Aron Freyr Jóhannsson

Sæl og blessuð. Langt síðan ég skribblað eitthvað niður handa ykkur íslendingunum, en örvæntið ekki, hér er á ferðinni innihaldsríkt og vonandi skemmtilegt blogg.

Síðustu vikur hafa verið skemmtilegar. Eins og allir vita þá gera Bandaríkjamenn ekkert með hálfum hug, ef þeir ákveða að eitthvað sé góð hugmynd(eða bara einfaldlega að það eigi að framkvæma það) þá gera þeir það af fullum krafti. Þannig að atburðir eins og hrekkjavakan, sem að ef þið vissuð það ekki var um síðustu helgi, eru alveg teknir svakalega alvarlega, allir klæða sig og fara á djammið. Að sníkja (trikk or tríta) eða einfaldlega bíða heima til að gefa krökkum nömm! Fjölskyldan mín hérna er aðeins minna í þessum hefðbundnu hlutum, svo að ég skar til dæmis ekki út grasker, ég skreytti ekki húsið, en ég skemmti mér samt alveg óeðlilega mikið á sjálfri hrekkjavökunni. Á sjálfum deginum fattaði ég að ég var ekki með búning, reddaði maður því ekki einfaldlega með því að skella sér í jakkafötin sín, fá lánað eitt stk axlabönd, ganga í svartri skyrtu með hvítt bindi, skella hatt á hausinn og stelast til að taka eitt stk silfur staf frá bandaríska pabba( þarf alvarlega að finna leið til að kalla þá báða pabba en hafa einhvern mun..)  og voila! Maður var orðinn ítalskur mafíósi(eða eitthvað í þá áttina) svo var skellt sér út með nokkrum þjóðverjum að trikk or tríta. Talandi um þjóðverja, ég er hægt og bítandi að komast að því að framhaldsskóla þýskan er alveg svakalega takmörkuð! Eftir að hafa sníkt smá, og séð að bókstaflega allir eru í búning á þessari hátíð, misefnismiklum þó(sumar stelpur klæddar í 3 klúta og girni, einn fyrir hvort brjóst og svo einn til að hylja það allra helgasta) þá skellti maður sér á AFS hitting, allir afs krakkarnir að hittast, borða, spjalla og leiðast(hver reynir að halda „teiti" með engri tónlist?) fór svo þaðan með einu stykki þjóðverja og öðru stykki frakka í partí úr þeirra skóla, þar fyrst fór maður að kynnast amerískri unglingamenningu, beerpong(virkilega spes leikur um að henda ping pong kúlu í glös og drekka, nennti ekki að setja mig meira inn í hann) rauðu glösin úr bíómyndunum (JÁ þeir drekka virkilega úr þessum glösum) og allt það. Virkilega skemmtilegt kvöld þar.

Um daginn komst ég einnig að því að Hvíta húsið er ekkert það spes, þar eru hellingur af myndum af forsetum, oftast Obama, þónokkur herbergi með fallegum húsgögnum, og alveg yndislega ofinn teppi. Það sem var mest spennandi við þá ferð var að geta sagst hafa verið í sama húsi og hann Obama.

Á laugardaginn(morgun) verður svo þraukað að vakna kl 5 að morgni til , sofa í 5 klst rútuferð til þess eins að fá 8 klst í NEW YORK og svo farið aftur til baka um kvöldið, allir skiptinemarnir að fara saman, að skoða borgina sem margur maðurinn hefur lýst sem hrærigrautur menningarinnar, þar sem allar menningar heimsinns renna saman í eina æðislega súpu, líklega svakalegar ýkjur frá bandaríkjamönnum sem vilja eiga allt best! Segi meira frá þeirri ferð þegar henni verður lokið.

Hvaðan haldiði að ég hafi fengið að vita af lokun McDonalds á Íslandi? Nú auðvitað frá könum, þetta komst í fréttirnar hérna úti og var talað um það á mörgum útvarpsrásunum. Skemmtilegt líka hvað nærvera mín hefur haft áhrif á nokkra í skólanum mínum, til dæmis eru nokkrir af vinum minum sem hafa tekið orðið björn, án þess að vita hvað það þýðir, og breytt því í orð sem þýðir allt „dont bjorn it" og „he bjorned that shot" er farið að verða eitthvað sem ég heyri reglulega!

Og núna að því sem allir eru spenntir að vita um, dansrútínan mín verður dönsuð á þakkargjarðarhátíðinni, fyrir framan allan skólann, spennandi ekki satt? Nei mér finnst það heldur ekkert svakalega spennandi, en danskennarinn er alveg að fýla það.

 Svo er kynlífsfræðslan hérna alveg svakalega skemmtileg, bókin sem við notum talar furðu mikið um skírlífi, en sem betur fer veit skólinn betur og fær annað fólk til að tala um smokka og allt það húkkumbúkk!

Svo er það fótboltinn, mörgæsirnar eru búnar að vinna 4 leiki, eitt jafntefli og eitt tap og 3 frestaðir leikir, frestuðu leikirnir í næstu viku, og svo er það bara úrslitakeppnin! Fótboltinn er eins og ég hef minnst á áður, á allt öðru leveli hérna úti, allavega í public skólunum, einkaskólarnir eru víst miklu betri, ekki það að ég hafi séð þá spila.

En þetta ætti að nægja af bloggvitleysu í bili, og þó þetta hljómi eins og 13 ára gelgja að biðja um athygli þegar ég bið ykkur um að kommenta, þá er það einfaldlega vegna þess að það er miklu skemmtilegra að skrifa blogg ef maður fær að vita að fólk er að lesa það!

;Aron Freyr

Athugasemdir

1
Sunneva skrifar:
öfund dauðans frá mér...þú veist ekki hvað mig langar mikið að upplifa halloween :D það hefur örugglega verið mikið fjör :D gangi þér sem alllra best á fótboltaleikjunum :D ég verð hérna heima að hvetja þig :D og ef að þú vilt fá að vita þá er ég komin inná ÍM25 í 100m flugsundi þannig að þú þarft að hafa betri tíma en 1.16.64 ef að þú ætlar að vinna mig þegar að þú kemur heim :D
undirritað af bestu systir í heimi :D
07. nóvember 2009 klukkan 19:03
2
Pabbi skrifar:
Sæll sonur það er aðeins einn Pabbi, þú getur kallað hinn gaurinn kallinn eða eitthvað. Annars gaman að heyra frá þér, Stákarnir á verkstæðinu bíða spenntir eftir því að fá að sjá dansinn. (er ekki season 7 að byrja í So You Think You Can Dance) það byðja allir að heilsa.
kv.Pabbi
08. nóvember 2009 klukkan 07:32
3
Adda skrifar:
Aron minn það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt og það lesa það margir þó ekki sé kommentað :)
Það er að heyra á bloggunum þínum að þér er að líka mjög vel þarna, en ég vona samt að þú komir aftur heim.
Njóttu þess í botn :)
Kveðja frá Baðsvöllunum
10. nóvember 2009 klukkan 12:06

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Aron Freyr Jóhannsson
  • Staður: Grindavík
  • Um mig: Ég er 18 ára drengur sem fékk þá furðulegu hugdettu að yfirgefa allt og alla sem ég þekki í heilt ár.. er semsagt skiptinemi í Bandaríkjunum.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...