Homecoming, oflAron Freyr Jóhannsson

Sælir lesendur

Ég biðst innilegrar afsökunar á að hafa gleymt einu alveg svakalega spennandi í síðasta bloggi! Ég hef farið inn í „THE pentagon", varnamálaráðuneyti bandaríkjanna, og séð það litla þorp sem þar er, daglega vinna þar tífalt fleiri en búa í Grindavík, eða u.þ.b. 25000 manns daglega, plús gestir og sérfræðingar  sem ekki eru í hernum. Gríðarlega stór bygging og magnað hvað bandaríkjamenn eru ýktir í öllu, t.d. má ekki taka myndir af neinu í kringum bygginguna nema einu „press release" borði. Svo eru alls kyns sögur af byggingunni, eins og það að sovíetmenn vissu ekkert um pentagon í kalda stríðinu, en í miðjum garðinum í miðjunni á byggingunni er lítil bygging sem allir hæst settu herforingjar Bandaríkjanna sáust reglulega líta við í, þessi bygging var talin svo mikilvæg að sovíetmenn höfðu ekki eina, ekki tvær, heldur þrjár kjarnorkubombur miðaðar á þennan stað, kom svo í ljós að þetta var pulsusjoppan.

En þarsíðasta helgi var það New york, það sem sú borg er mikilfengleg, allt er stórt, allt er ýkt, allt er svo frábrugðið því sem maður á að venjast að erfitt er að finna orð til að lýsa því, myndir eru á leiðini á smettisskrudduna, letin að gera útaf við mann stundum, en vídjóið af mér og ítalanum Giorgio að missa næstum af rútunni heim er komið á netið. Magnað nokk að hlaupa um mannsmergðina á götum New York að kvöldi til! En einn dagur í New york dugði einungis til að skoða Times square, fimmta breiðstræti, og central park, enda er markmiðið að fara aftur, ef ekki aftur í þessa stórfenglegu borg.

Yfir að skólamálum, núna er í gangi Spirit week, fyrir þau ykkar sem vita ekki hvað það er þá er það svakalega skondið fyrirbæri, nokkurnvegin eins og þemadagar bara miklu skemmtilegra, alla daga eru þemu, svo er haldið peprally þar sem allir öskra, bekkirnir með sérstaka söngva osfrv. Þetta endar svo allt á homecoming á föstudaginn sem er frábrugðið í mínum skóla frá öðrum, oftast eru allir svakalega fínir og stelpurnar kaupa kjóla og allan pakkann, en hér er það bara "semiformal" hvað sem það nú þýðir. Þetta er vanalega miklu fyrr í árinu þegar fyrsti fótboltaleikurinn er, en þar sem skólinn minn er ekki með fótboltalið og spilar bara soccer(okkar fótbolta).

Talandi um alvöru fótbolta, þá er tímabilið búið, og lentum við í fjórða sæti, og þarf maður núna að finna sér eitthvað annað að gera til að verða ekki feitur hérna úti. Svona til að slá á allar efasemdaraddir þá hef ég ekki þyngst neitt síðan ég kom hingað! Þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir og kjánalegheit!

Til gamans má einnig minnast á að ég er búinn að vera hérna í 3 mánuði, bara 7 eftir, hvur andskotinn hvað tíminn líður hratt!
;Aron Freyr Jóhannsson

Athugasemdir

1
Adda skrifar:
Váá..... Ertu bara búinn að vera í 3 mánuði??? ég get svarið að mér finnst eins og það séu 7 mánuðir síðan ég hitti þig síðast.
Er nokkuð mál að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera þarna í staðinn fyrir fótboltann? Það er allt til í Ameríku.
Góða skemmtun á ballinu :)
Bestu kveðjur frá Baðsvöllunum :)
18. nóvember 2009 klukkan 22:09
2
GuðrúnG skrifar:
Þú getur dansað þér til yndisauka! þvílíkar lygasögur sem flykkjast hingað til Íslands um ágæti þín í þeirri íþrótt.
djöfull á ég eftir að sakna þín á jólunum/áramótunum.
ætla að reyna að fá það í gegn að hafa þig á skype í áramótaræðunni minni, þarf ég að sækja um það sérstaklega hjá AFS?
21. nóvember 2009 klukkan 21:50
3
Aron Freyr Jóhannssonheyrðu gudda! það þarf ekkert leyfi fyrir svoleiss! bara að lata mig vita kl hvað eg þarf að vera a skæpinu! en veistu braðum getur þu fengið að sja hversu goður/lelegur/hörmulegur/geðveikselga pro/eitthvað annað eg er i dansi, þvi að a morgun mun eg dansa fyrir framan allan skolann, og gettu hvað, það verður tekið upp!
22. nóvember 2009 klukkan 18:16
4
Adda skrifar:
Váá... hvað ég hlakka til að sjá dansinn. Ég er viss um að þú verður algjörlega pró í þessu eins og öllu öðru sem þú tekur þér fyrir hendur.
22. nóvember 2009 klukkan 19:56
5
GuðrúnG skrifar:
Cannot wait.
22. nóvember 2009 klukkan 20:06
6
Mamma skrifar:
Í dag er dagurinn sem margir hafa beðið eftir, dansdagurinn mikli. Hlakka til að sjá þig í þessu nýja hlutverki. Kveðja Mamma
23. nóvember 2009 klukkan 16:41

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Aron Freyr Jóhannsson
  • Staður: Grindavík
  • Um mig: Ég er 18 ára drengur sem fékk þá furðulegu hugdettu að yfirgefa allt og alla sem ég þekki í heilt ár.. er semsagt skiptinemi í Bandaríkjunum.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...