Aron !! ég er ekki frá því að ég sakni þín ´súberdúberúber mikið :/
Gott að heyra að það sé allt gott að frétta hjá þér =)
Bíð spennt eftir dansmyndbandinu eins og eflaust margir haha..
Verð að segja eit !!! Ég var að MASTERA stærðfræðipróf !!!! úfff þú værir svooo stoltur af mér .. er sko að meika það í þessum skóla þar sem kennarinn tók svona 3 vikur í að kenna samnemendum mínum hornaföll frá grunni !!! þú hefður svo aaaaldrei haft þolinmæði í þetta =) hhaha
Svo er ég mjög líklega að fara til Bandaríkjana eftir áramót =) en heyri í þér við tækifæri dúlludúskurinn minn :*
skaniskan :*
Þín Hraðbrautar snillingur
AðalbjörgRósa
Nýtt blogg, međal efnis; snjórAron Freyr Jóhannsson
Sæl og blessuð!Langt síðan ég hef látið í mér heyra hérna á blogginu, en það hefur einfaldlega verið virkilega mikið í gangi! Ekki nóg með að það var þakkargjörðarhátíð, heldur var maður líka að byrja í track, lokahóf í fótboltanum, leikhúsferð og þar fram eftir götum.
En byrjum á því besta, þakkargjörðarhátíðinni, þar var allt eftir bókinni, kalkúnn, sósa(gravy), trönuberjasósa, bökur og kökur! Allt var þetta lystisamlega gott og ekki var það verra hversu skemmtileg samtölin við matarborðið voru. Kalkúnninn var virkilega góður þó að hann hafi því miður ekki jafnast á við hinn víðfræga sem er borinn fram á gamlárskvöldi ár hvert að Hólavöllum 15.
Ólíkt mörgum erlendum skiptinemum lét ég mig vanta á svarta föstudeginum, eða black Friday, sem er stærsti verslunardagur ársinns hérna úti, klikkaðar útsölur og ennþá klikkaðari konur til að slást við um vörur. Ákvað að láta mig vanta frá því þar sem mér er annt um heilsuna(og líka nokkuð annt um budduna).
Track and field(frjálsar íþróttir fyrir okkur íslendingana) er þónokkuð erfiðara en fótboltinn, á fyrstu æfingunni veigraði þjálfarinn sig ekkert við það að láta mann hlaupa míluna eins hratt og maður mögulega getur, ákveða að maður eigi með enga fyrri reynslu að hlaupa grindarhlaup, og þar fram eftir götum. Semsagt virkilega erfitt en einnig virkilega skemmtilegt, og enginn vafi á því núna að maður verður í nett góðu formi þegar maður lendir aftur á klakanum.
En það er kominn Desember, og sú staðreynd er ekki ennþá að sía sig inn í hausinn á mér Nóvember einfaldlega flaug í gegn. Hátíðirnar verða allt öðruvísi en vanalega, engin jólaboð með fjölskyldunni, engin hamborgarhryggur, ekkert hangiket, engin flugeldaklikkun, þetta verður spes en æðisleg lífsreynsla sem kennir manni kannski bara að meta betur það sem íslandið hefur upp á að bjóða
Varðandi að sem allir virðast vera að spyrja um, dansmyndbandið, það kemur inn fyrr eða seinna, um leið og ég fæ það þá verður það sett á netið með hraði og linkað hér og annarstaðar, engar áhyggjur! Það virðist allt bara virka hægar hérna í Bandaríkjunum, „on Monday" þýðir víst ekki lengur á mánudaginn, kannski þýðir það efir mánuð núna, hver veit, kanarnir eru svo fljótir að skipta um skoðun!
Svona til að enda bloggið þá er að snjóa í fyrsta skipti í vetur hérna í DC núna! Fyrsti snjór ársinns í desember! Og við að sjá það, er ég að fá nett meiri og meiri heimþrá!
;Aron Freyr
Athugasemdir
2
Besta vinkona ţín í geimi =) skrifar:
07. desember 2009 klukkan 23:53
3
GG skrifar:
Þú litli..
Ég fékk gæsahúð tvisvar við að lesa þetta blogg og var það í bæði skiptin sem minnst var á hátíðirnar.. Mér finnst asnalegt að þú sért í útlöndum og ég vil fá þig heim! núna, takk!
takk og bless.
Ég fékk gæsahúð tvisvar við að lesa þetta blogg og var það í bæði skiptin sem minnst var á hátíðirnar.. Mér finnst asnalegt að þú sért í útlöndum og ég vil fá þig heim! núna, takk!
takk og bless.
08. desember 2009 klukkan 10:20
4
Arnór Bumba :D skrifar:
Blessaður Pungur, flott að allt gengur vel hjá þér þarna úti ;D Sýndu þeim svo hvernig við víkingarnir spilum íþróttir hehe :D
P.s. MHMMM Hamborgahryggur HEHE :D
P.s. MHMMM Hamborgahryggur HEHE :D
12. desember 2009 klukkan 17:58

Það er nú svakalegt að þú hafir þurft að fara alla leið til Bandaríkjana til að fatta hversu góður kokkur ég er:-):-)
kveðja pabbi