jólablogg!Aron Freyr Jóhannsson
Nú líður alltaf lengra á milli blogga, en samt finnst mér eins og það líði styttra, tíminn er farinn að líða hættulega hratt hérna! Áður en ég veit af verður kominn Júní og ég um borð í flugvél á leiðinni heim! Yfir að skemmtilgra umræðuefni. Eins og þessu, kannast einhver við Jeff Dunham? Ef allt gengur eftir þá mun ég skella mér á live sýningu með kappanum þann 21 Janúar, innan við viku eftir að ég kem heim úr heimsókn þvert yfir Bandaríkin til Högna og Amy , San Fransisco beibí! En mikið hefur gengið á síðan ég bloggaði síðast, fyrst og fremst ber að nefna metsnjókomu í DC, 60 cm (2 fet), allt fór í panik, öllum skólum lokað (var nú þegar kominn í frí því miður), meira að segja sjálf ríkisstjórnin tók sér frí. Eina sem þeim vantaði var 2 góð pör af nagladekkjum og málunum reddað. En svona snjór er víst svo óvenjulegur að enginn var við þessu búinn. Mér fannst skemmtilegt að þetta var kallað „blizzard" eða blindbylur, og eina sem gerðist var að fallegur jólasnjór féll niður til jarðar, hægt og bítandi. Er farinn að halda að Ísland hafi stækkað hjá mér í minningunni, allt betra, meira, kaldara, blautara, já eða nú bara hreinna. Talandi um ísland! Fyrir utan það að sakna fjölskyldu og vina, þá sakna ég íslenska vatnsins aðeins of mikið, jafnast ekkert á við það! Til gamans má geta að í þessum „snjóstormi" þá vorum við nokkrir skiptinemarnir eftir í partýi á föstudagskvöldi, að sjálfsögðu var ekki sótt okkur á laugardeginum þar sem húsið var smá úr alfaraleið, því í staðin varð einar nætur sleepover að 3 daga afslöppun, snjóslag og bíómyndaglápi, já og pönnukökuáti! En já, Jólin! Án fjölskyldunnar, þetta er erfitt og spes! En gaman þó, fjölskyldan hérna er næs og allt er geðveikt! En samt ekki eins, til dæmis virkilega spes að opna gjafir þann 25. Er ekki alveg að meika það! Reyndar er eitt sem ég sakna ekki og er hjartans ánægður að vera án, skatan, sénsinn á að geta gengið inn í hús og þar angar allt af skötu er alls ekki til staðar hérna. Segi kannski meira frá þessum jólum þegar þau eru liðin Hef farið tvisvar á skauta í þessum mánuði, var í bæði skiptin mér og þjóð minni með forskeytið ÍS til háborinnar skammar, hef átt í miklum erfiðleikum með að útskýra fyrir útlensku fólki að ég hafi aldrei farið á skíði og sé hræðilegur á skautum. „But you are from ICEland" er eitthvað sem ég hef heyrt furðu oft! Mér hefur tekist að sannfæra nokkra um að íslensk matarmenning geti verið góð, til dæmis lambakjöt... en eina sem þau sjá er hákarlinn, slátrið og hrútspungarnir, sama hvað ég dásama lambið og gæðin á íslensku kjöti, alltaf fylgir „what about the rams testicles" Frjálsar íþróttir eru erfiðari en ég hélt, að byrja fyrsta mótið sitt á að hlaupa 3,2 kílómetra í kapphlaupu hjálpaði kannski ekki til, en ég er allur að koma til, hljóp í síðustu viku kílómeterinn á 3:15, fyrstur í 6 manna rási, eini hvíti maðurinn, var smá stoltur! Fyrir ykkur spennt fyrir dansinum mínum, hann kemur ekki inn fyrr en eftir jól, kennarinn minn er með fullkomnunaráráttu, eftir að hafa búið allt vídjóið til þá fattaði hún að tónlistin var víst smá léleg svo að hún ákvað að remaster alla tónlistina inn á diskinn, og neitaði að láta mig fá hina útgáfuna, svo þið verðið öll bara að bíða og sjá! En Gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár (auðvitað verður það gæfuríkt, þið hittið mig aftur á því!) takk fyrir það liðna! -Aron Freyr JóhannssonAthugasemdir
1
GG skrifar:
Var að smella á þig jólakveðju af Baðsvöllunum inná FB en ég verð að halda uppi heiðri mínum sem commenthóran á þessari síðu þannig ég óska þér góðra jóla kúturinn minn og hlakka til að heyra í þér á gamlárs ;)
24. desember 2009 klukkan 17:13
2
Uppáhald frćndi.. skrifar:
Aron þú hefðir átt að seiga þetta með skötuna svolítið firr.. en allavegana þá ekki opna næsta pakka sem kemur frá mér bráðlega.. :$
Sind að þú skulir vera sona langt í burtu um jólin og áramótin (sérstaklega áramótin) verður ekki eins án þín.. hlakka til að sjá þig aftur á níu ári..
Gleðinleg jól ;)
(þar sem ritstíll min er líklegast búinn að koma upp um mig þá verð ég að sega þetta)
kær kveðja Rúnar ;)
Sind að þú skulir vera sona langt í burtu um jólin og áramótin (sérstaklega áramótin) verður ekki eins án þín.. hlakka til að sjá þig aftur á níu ári..
Gleðinleg jól ;)
(þar sem ritstíll min er líklegast búinn að koma upp um mig þá verð ég að sega þetta)
kær kveðja Rúnar ;)
24. desember 2009 klukkan 17:16
3
UPPÁHALDS frćndi ţinn sem kann ađ stafa skrifar:
ég er viss um það að þér verði sárt saknað hérnamegin sérstaklega áramótaræðunni
og ekki verður jólaboðið annan í jólum eins án þín
hlakka til að sjá þig þegar þú kemur heim feitur og flottur eins og ég
kær kveðja
(sá sem þarf að skammast sín fyrir ritstíl bróður síns)
Viktor
in case you don't remember who i am, i'm the guy with the orange tux
Happy Holidays!
og ekki verður jólaboðið annan í jólum eins án þín
hlakka til að sjá þig þegar þú kemur heim feitur og flottur eins og ég
kær kveðja
(sá sem þarf að skammast sín fyrir ritstíl bróður síns)
Viktor
in case you don't remember who i am, i'm the guy with the orange tux
Happy Holidays!
24. desember 2009 klukkan 17:23
4
Aron Freyr Jóhannsson skrifar:
Rúnar ég fékk fréttir af ţeim pakka, hann var stoppađur í tollinum sem efnavopn, fbi er á leiđinni heim til ţín! Viktor, ţú ert ekki sá eini međ the orange tux! ţú deilir ţeim titli međ stórafrćnda!!
24. desember 2009 klukkan 17:35
5
Afi,Hebba og Halli skrifar:
Elsku Aron,okkar innilegustu jólakveðjur til þín og þinnar fjölskildu, hafðu það sem best um jólin,kveðja frá okkur öllum .Afi og co.
25. desember 2009 klukkan 15:41
6
Birna skrifar:
ja, thar verd eg ad vera sammala ther ad eg sakna islenska vatnis ogurlega mikid!!
og thessir kanar...gera vedur af sma snjokomu og roki!! pfff, bara hid finasta vedur, fallegur snjor og svona!
en gledilega hatid, th.e, jol og aramot og allt gamla klabbid!
kv. birna
og thessir kanar...gera vedur af sma snjokomu og roki!! pfff, bara hid finasta vedur, fallegur snjor og svona!
en gledilega hatid, th.e, jol og aramot og allt gamla klabbid!
kv. birna
27. desember 2009 klukkan 00:25
