Dvölin hálfnuđ!!Aron Freyr Jóhannsson

Sæl og blessuð!

Eins og titillinn segir til um þá er dvölin hálfnuð, ég er alltaf meira og meira að gera mér grein fyrir hversu hratt tíminn líður! Erfitt að útskýra þessa tilfinningu þegar maður saknar fólksins heima en getur vart hugsað sér að fara heim!

Jólin hérna voru æðisleg, á Íslandi eru þau talsvert hátíðlegri, var til dæmis smá skrýtið að sitja í náttfötunum á morgni þess 25. eftir að hafa borðað morgunmat og opna gjafir. Íslenska nammið í sumum pökkunum var þó vel metið, þakkir fyrir það! Taki þeir til sín sem eiga skilið. Jólafríið hérna í USA var líka skrýtið, það var 2 vikur (frá 18 des til 4 jan) og allir voru að blaðra um hversu langt það væri.. og svo fengum við heimavinnu.. var ekki alveg sammála þeim um gæði þessa frís, þó skemmti ég mér ótrúlega mikið, fór að synda næstum hvern einasta dag, og vakti svo langt fram eftir nóttu með vinunum, var smá leiður þegar ég þurfti svo aftur að vakna til þess að fara í skólann!

Gamlárskvöld var virkilega skemmtilegt, en enn og aftur, allt öðruvísi en heima, engin fjölskylda, engir flugeldar, bara vinir og partý.. verð að segja að ég saknaði hátíðlega fýlingsinns sem alltaf liggur yfir vötnum þennan tíma árs heima!

En flest ykkar vita líklega að Högni(bróðir pabba fyrir ykkur sem ekki vitið) býr í San Fransisco, og þegar ég fékk 4 daga helgi útaf Martin Luther King Day,  datt mér í hug að skella mér í heimsókn, og ég lagði af stað, kl 7 að morgni föstudagsinns (í dag þegar þetta er skrifað) og var flugvélin var lengi á leiðinni í loftið, tók um það bil heilar 45 mínútur að bíða, láta afþýða vængina og alls kyns dútlerí, svo ég missti af tengifluginu, ásamt um 16 öðrum, nokkrir voru ríkir og keyptu sér nýja flugmiða hjá öðru flugfélagi, ég bý ekki svo vel að málum, svo ég ákvað að sjá til hvað flugfélaið gerði fyrir okkur, fyrst hringdu þeir útum allt og fundu ekkert flug, fyrr en daginn eftir, nákvæmlega 24 klst seinkunn, ég ákvað að sætta mig við það, og því sit ég hér, einn á hótelherbergi í Milwaukee að horfa á sjónvarpið og að blogga!

Þetta er svona það helsta í fréttum, næsta blogg verður um æðislega ferð til San Fransisco, kannski ég segi nákvæmar frá ferðinni sjálfri líka!

Aron Freyr;

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Aron Freyr Jóhannsson
  • Stađur: Grindavík
  • Um mig: Ég er 18 ára drengur sem fékk ţá furđulegu hugdettu ađ yfirgefa allt og alla sem ég ţekki í heilt ár.. er semsagt skiptinemi í Bandaríkjunum.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...